Lífsmark

On Fimmtudagur, 30. október 2008, in Sjálfið, Skemmtun, by carlos@annall.is

Einhvern veginn hefur mér ekki hugnast að blogga mikið í kreppunni. Ég hef hinsvegar fylgst með og sent athugasemdir í blogg vina minna á moggablogginu … það er eins og mér hugnist ekki að verða spámannlegur í eigin bloggi þegar engin þörf er á fleiri spámönnum.

Eitt verð ég þó að segja (fer í flokkinn: Told you so)

1998 stofnaði ég aukalífeyrissparnaðarreikning. Sá var í peningamarkaðshlutabréfum. Og var ágætur.

1999 ræddi ég við Björn útibústjóra. Mig minnir að ég hafi þá horft á DeCode og fleiri fara upp og niður og hugsaði mér mér: Hlutabréfaviðskipti á Íslandi? Das kann nicht gut gehen. Skipti yfir í vísitölutryggðan reikning.

Næstu ár fylgdist ég með gengi þessara reikninga, hvað sá gamli hefði gert miðað við þennan sem ég síðan valdi. Ég leyfi mér að segja að aldrei sá ég eftir að hafa skipt.

Sérstaklega ekki í fyrradag þegar ég fór inn í LÍ og gáði hvort þessar fáeinu krónur mínar voru tryggar – þær voru það, ólíkt hinum, sem hefðu farið í súginn að miklu leyti.

Að allt öðru. Mér fannst Matti Vantrúarformaður sleppa fullbillega með dylgjur (“dylgjublogg”) í garð meintra ofurlaunapresta sem aka um á Benz jeppum. Tók þátt í samtalinu hjá Erni Bárði og uppskar eins og ég sáði. Tilskrif Matta eru hreinasta snilld:

http://www.orvitinn.com/2008/10/29/22.45/

Ég verð að játa á mig það að hafa ekki farið úr járnglófunum þegar ég tók að strjúka honum léttilega um rök og ummælandann, uppeftir feldi … kannski honum sárni rispurnar eftir atlotin. En af hverju heldur hann að ég elski hann ekki?

Hér er svo ein lítil athugasemd í lokin, tekin úr bókinni “Talk to the Snail, Ten Commandments for Understanding the French” eftir Stephen Clark:

I’m amazed that the police carry out breath tests to find out ho much alcohol people have in their blood without testing for the vintage. – Olivier de Kersauson

Bókin hefur vitaskuld ellefu kafla, einn fyrir hvert boðorð.

 

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.