Vefir í hönnun

hraunavinir.net - WP og Mandingo þemað

Undanfarnar vikur og mánuði hef ég hafið vinnu við nokkra vefi, sem munu taka á sig ákveðna mynd og virkni innan allt of langs tíma. Þar nefni ég fyrstan vef Hraunavina (gerður í WordPress), síðan vef Borgaskóla og loks vef Gesthúsa (báðir í Joomla). Sá síðastnefndi þolir reyndar ekki dagsbirtu, þar sem hann er eiginlega aðeins í skötulíki. En um leið og vefur Borgaskóla er kominn á legg …

Þessir vefir eru mjög ólíkir. Hraunavinir byggir á því að mikið er til af myndum sem kerfið þarf að birta. Því tengdi ég síðuna við Flickr með ískoti (plugin) sem sýnir heilu settin og jafnvel allar myndir í hóp.

Joomla! vefur Borgaskóla inniheldur mikið af flokkuðum gögnum sem margir þurfa að koma að. Margir skráðir lesendur, margir höfundar efnis, margir stjórnendur. Öflugur myndabanki (10 gb af óþjöppuðum myndum á skólaári) og gott geymsluhólf fyrir fylgiskjöl sem mörg eru í pdf eða doc formi. Hvað framtíðin ber í skauti sér er óráðið, ég vona að hann geti orðið að námsstjórnunarkerfi (LMS).

Loks verður vefur Gesthúsa að skarta skilvirku bókunarkerfi með fram og bakhlið, þannig að tölvupóstsbókanir verði óþarfar. Lítið af myndum en þær þurfa þó að vera til staðar og líkast til verð ég að taka þær sjálfur.

Ég kem til með að hýsa vefina fyrir Gesthús og Hraunavini, þannig að þar bætist reynsla í bankann.

Related posts:

  1. Hönnun eplisins
  2. hönnun
  3. Hönnun – hönnun – hugmyndir

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.