Margmiðlunarkenndur vefur – www.taeknimennt.net (40%),
hugarkort, skjárkennsla, kennsluáætlanir (10%).
Vefurinn er hugsaður sem geymslu og samvinnustaður fyrir UT og tæknikennara á Íslandi. Ég samdi greinar og kennsluáætlanir sem, m.a. um samþættingu náms. Allt efni er frjálst til notkunar, sé höfunda getið og breytingar á efninu leyfilegar, svo framarlega sem öðrum er veitt sama leyfi (Creative Commons höfundaréttur). Efni unnið í námskeiðinu “Nám og kennsla á netinu 2008″ er einnig vistað þar og geri ég grein fyrir þeim færslum á skilasíðu hér.
Tæknimenntanetið er Mediawiki vefur, sem er opinn fyrir ýmsum margmiðlunarhlutum. Ég setti hann upp á LAMP vefþjóni (Linux, Apache, mySQL, PhP), opnaði fyrir tengimöguleika við ýmsar margmiðlunarveitur og samdi efni til birtingar á honum. Tenging m.a. við Mindmeister.com hugarkort, Flickr.com myndabanka, Slideshare.com glærusýningarþjón, tenging við önnur Mediawiki kerfi (t.d. Wikipedia), krossapróf og html kóðun, sem eykur á möguleika til að setja inn margmiðlunarefni frá ýmsum stöðum.
Mikill tími fór í uppsetningu og php kóðun, en ég hafði enga reynslu af því áður (þessi skilavefur var auðuppsettur með hjálp Simple Script þjónustu). Eins fór mikill tími í hugmyndavinnuna, því að aragrúi Wikivefja og annarra CMS lausna er til staðar, en ég vildi að þetta verkefni nýttist mér og öðrum kennurum frá fyrsta degi hans. Ég er viss um að mér hafi tekist það ætlunarverk.
Mikill tími hefur farið í gerð kennslumyndbanda, þar sem ég vinn almennt á Mac tölvur og ég uppgötvaði ekki fyrr en titölulega seint í ferlinu, að ósætti er milli Snapz X Pro forritsins, sem ég nota til að taka skjákvikmyndir og QuickTime, sem kóðar myndirnar. Í eftirvinnslu í iMovie urðu myndirnar svartar (hljóðið kom) og eftir nokkrar tilraunir og leit á vef www.ambrosia.com sem bjó til hugbúnaðinn, fann ég lausina. Eftir sem áður næ ég ekki að gera nema hámark eitt kennslumyndband á dag, enn sem komið er. Það stendur þó til bóta.
Hljóðvinnsla (10%)
Hljóðvinnsla aðallega í tenslum við skjákvikmyndagerð og kvikmyndagerð þar sem ég þurfti að gæta þess að hljóð færi ekki uppfyrir eða niðurfyrir ákveðið mark.
Ég sá um útsendingu söngvakeppni Samfés í mars 2008 og þar þurfti ég m.a. að gæta þess að hljóð (sem ég fékk frá hljóðmanni) skilaði sér með réttu í gegnum tölvuna. Fyrra kvöldið, á ballinu mistókst mér sbr. hér (misheppnað vegna of hás útsendingarstyrks hljóðsins) en síðari atburðurinn tókst með ágætum, sbr. hér.
Myndbútur – Guantanamo áskorunin (20%)
Fátt um þetta verkefni að segja annað en að ég vildi ég hefði getað búið til þetta hér.
Flashverkefni (10%)
Ekki skilahæft og ekki skilað nema að litlu leyti á WebCT- náði aldrei sambandi við það forrit.
Þátttaka í umræðum og samskiptum (10%)
Sjá WebCT áfangans.
Related posts:
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
