Englendingar hafa það fyrir sið – eða a.m.k. fyrir orðatiltæki, að maður talar ekki um trú, kynlíf eða pólítík í blönduðu samkvæmi. Ég vil ganga skrefinu lengra og fullyrða það hér og nú að ofangreindir málaflokkar eiga eftir að ganga af veraldarvefnum dauðum. Því til stuðnings ætla ég að nefna þrjú dæmi, eitt úr hverjum málaflokki.
1. Í árdaga netsamskipta, eins og ég þekki þau (1996 eða þar um bil), kom upp samskiptamöguleiki sem kallaðist ICU, eða Ég Sé Þig. Sigurður Másson, sem þá var sölumaður í Apple umboðinu sýndi mér hvað þurfti til að nýta sér þetta, einfalda vefmyndavél, míkrófón og módald tengt tölvu, en sagði mér um leið að klámiðnaðurinn og sýniþörfin væri búin að taka yfir miðilinn þannig að þetta væri ekkert lengur fyrir alvarlega hugsandi eða vinnandi fólk.
2. Applenotendur eiga sér tvo spjallvefi hér á landi, og eru báðir fínt samfélag þar sem menn sameinast um að hjálpa hver öðrum í að fikra sig áfram veginn mjóa í átt til frelsisins – frá þjónustu við Micro$oft. Ólíklegustu menn eiga þar samleið, ekki er spurt um annað en tölvu- og stýrikerfiseign, vandamál leyst og oftast rætt í bróðerni. Nema um daginn, þá ætlaði ég að sjá hvort hægt væri að virkja hið hlýja samfélag til aðgerða gegn íslenskum nasistum sem halda úti skaparanum punktur com. Þá kom annað hljóð í strokkinn og stutt var í önuglyndisköst þeirra sem annars talast saman í bróðerni. Þetta ætlar sig að endurtaka sig nú, tveir þræðir helgaðir trú- og stjórnmálum eru eins og “diabolus in musika”, tónskratti í annars samhljóða tónverki (hér og hér).
3. Eftir að Halldór Elías færði annálinn sinn úr vef 2.0 í einfalda heimasíðu (=lokaði fyrir athugasemdir), er ekkert lengur gaman að hanga hér á annálinum. Um leið og ég lýsi yfir skilningi mínum á aðgerðinni, verð ég einnig að segja frá sorg minni, yfir því að ekki virðist hægt að tala hér eða á neinu bloggkerfi hér á landi um trú og pólítík án þess að úr því verði það sem áramótaskaupið kallað “blo, blo, blo, blogg”, n.t.t. rafraus sem ekki er mark á takandi og er beinlínis meiðandi fyrir alla sem taka þátt.
Nútímavefur gengur út á gagnvirk samskipti. Facebook, Myspace og Secondlife eru dæmi um það en líka afkimar eins og maclantic.com, ustream.tv eða operator11.com. Ef pólítík, kynlíf eða trúmál eitra þau samfélög, þá er ástæða til að óttast framhaldslíf netsamskipta.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Vá, stendur og fellur annállinn með Halldóri Elíasi? Þú styður hann þá væntanlega til forseta
Og af hverju á einhverjum ekki að vera sama um hvað áramótaskaupið segir um það sem hann hún gerir bloggar …
Skemmtileg pæling engu að síður!
[...] eru í mjög stóru hlutverki í nýrri, glæpsamlegri framtíðarsýn Carlosar sem hann setur fram á annálnum sínum. Skemmtileg pæling sem vekur til [...]
Hvað get ég sagt annað en það sem mér finnst? Mér finnst gaman að því að geta rausið á annarra manna bloggum. Annállinn er einu heimili fátækari fyrir vikið.
Áramótaskaupið hitti naglann á höfuðið þegar það greindi vísindalega þjóðarsálina … imho. Aftur, greining mín er mörkuð af sorg minni, engu öðru.
Fólk á að tjá sig um það sem því finnst og kannski hrekkur Elli í gang við þessi hvatningarorð hér, það væri mjög gaman.
Og ég er sammála þér að það vantar öflugan stað þar sem hægt er að skipast á trúarskoðunum almennt, ólitað af einhverjum einum trúarhópi. Kannski væri lokuð þvertrúarleg spjallrás málið þar sem að þú ert aðili að samræðuklúbbi sem setur sér sameiginlega ákveðin markmið, svona í stíl við að heimspekifabúlera um trú og sleppa skotgrafarhernaði.
Tengdi á færsluna þína af vísisblogginu mínu, vona að þú sért sáttur við það. finnst hún gott umhugsunarefni.
Well, lokaður vettvangur fyrir umræðu sem ætti að geta verið opin er þversögn í sjálfu sér? Það sem menn tala í leynum – er það ekki það sem frímúrarahreyfingin gengur út á?
Vettvangur af þessu tagi þarf ekki að vera lokaður, það eina sem þarf er sameiginlegur skilningur á því hvað sé nauðsynlegt til að samræðan haldi áfram (en hjakki ekki í sama farinu) og vilji til að gera það sem þarf til að hún geri það.
Af hverju opnar Þjóðkirkjan ekki sína eigin spjallrás/spjallborð?
Frímúrarablogg (-;
Kannski það væri lausnin.
Eða að við tökum okkur tak og hættum að vera svona viðkvæm fyrir því sem sagt er. En ef einhver annar tekur hlutina til sín?
Góð spurning Hjalti. Kannski spjallkerfi Þjóðkirkjunnar yrði eins og spjallvefur apple.is og apple.com – myndi taka lit af ritstjórnarstefnu kirkjan.is og tru.is. Lúta ritstjórn eins og opinberir vefir gera ætíð. Slíkir vefir eru ekki jafnopnir fyrir ummælum og óháðir vefir.
Spurning hvaða gagn er af slíkum vef. Mikið, ef þeir sem leita raunverulegra svara fá þau þar umbúðalaust. Lítið ef tilgangur með heimsókninni er að koma af stað umræðu, sem stofnunin vill ekki að fari fram – eða samþykkir ekki tóninn sem umræðan fer fram á.