Skýjabú: ADrive

On Sunnudagur, 16. mars 2008, in Fróðlegt, by carlos@annall.is

Í fyrstu færslu minni um efnið fjallaði ég um hugmyndina að baki internetsins sem risavaxna gagnageymslu og gagnasmiðju. Nú finnst mér ég kominn með efni í framhald að þessum þönkum. Ég byrja með því að setja mér mörk. Til þess að hægt sé að flytja tölvutæk gögn sín á vefinn og vinna þau þar þarf þjónustan sem veitir gögnunum stað til að vera á og leyfir vinnslu þeirra að:

  1. Bjóða ókeypis þjónustu auk þess að selja þjónustu á viðráðanlegu verði.
  2. Gera eðlilegar kröfur til vélbúnaðar og stýrikerfis, þ.e. virka í helstu vöfrum og algengustu íhlutum þeirra, s.s. Flash eða Java
  3. Vera ábyrgir bjóðendur þjónustu, selja ekki upplýsingar um vefnotkun til þriðja aðila og misnota ekki traust sem viðskiptavinir sýna, t.d. með því að gera gögn notenda að sínum eigin eða nota þau í auglýsingarskyni án samráðs við þá.
  4. Vera ekki dægurfluga, byggja á traustum samfélagslegum grunni og tengjast öðrum þjónustum með víðtækum stuðningi.*

Í þeim anda langar mig að benda á gagnageymslu á netinu, sem heitir ADrive (e.t.v. í anda gömlu diskettnanna), en sú þjónusta er í BETA útgáfu nú um þessar mundir.** ADrive býður hverjum sem er 50 gb gagnapláss og lofar að bjóða meira geymslurými þegar fram líða stundir, þá gegn greiðslu. Með þessu minna þeir á Flickr sem er eitt vinsælasta ljósmyndafélagsnetið. Til þess að nota ADrive þarf Java að vera uppsett og uppfært í tölvu og vafra.

Notkun þjónustunnar er blátt áfram, notendanafn er tölvupóstfang og lykilorð, tengt tölvupóstinum er eina auðkennið sem beðið er um. Þar með ætti maður ekki að setja viðkvæmar eða trúnaðarupplýsingar í þjónustuna, þar sem allt of auðvelt er að brjótast inn í gögnin, t.d. ef óviðkomandi kemst í tölvupóst manns. Þetta er m.ö.o. enginn “peningaskápur” á netinu, bara óskup snyrtileg skjalahirsla með nógu góðum lás til að halda heiðarlegum notendum frá því að blaða í gögnum manns. Að þessu leyti er nafn þjónustunnar ekki fjarri lagi, því diskettur í “gamla daga” voru ekkert sérlega öruggir geymslustaðir.

Vilji maður öruggari vistun gagna sinna, þá er hún bæði dýrara og flóknara fyrirbæri en það sem ég lýsti hér fyrir ofan.


*) Þetta hljómar e.t.v. flóknara en það er, ég vil að sú þjónusta sem ég treysti fyrir gögnum mínum versli ekki með gögn mín, fari ekki á hausinn og einangri sig ekki þannig að enginn nema sá sem verslar við þjónustuna geti notað það sem ég vista þar.

**) Webware fjallar stuttlega um þessa þjónustu – á möguleika á því að verða kosin ein af 100 bestu vefforritum þessa árs.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.