Kaffi vs. Starbucks

On Laugardagur, 18. ágúst 2007, in Eldhús, by carlos@annall.is

“Þegar þú ferð til BNA skaltu biðja um töfaldan expressólatte í Starbucks,” sagði kaffibarþjónninn í Kaffitári í Leifsstöð við mig. “Þannig færðu um það bil sama styrk á kaffi og þú ert vanur frá okkur.” Þetta gerði ég með góðum árangri um allt Nýja England. Það versnaði þegar kom til Texas.  Kaffið var þynnra þar. Botninum var náð í hjarta kúrekalands, þar sem ég pantaði þrefaldann expressólatte, baristan átti engin önnur orð en. “You´re hard-core!”. Því miður var þrefaldur expressólatte í ísbúðinni í New Brunswick þynnri en tvöfaldur í Starbuck í Houston eða San Antonio. Fræðilegri samanburður staðfestir það, að þetta er varla kaffi sem er drukkið heldur mjólk með bragðefnum.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.