Um nokkurra ára bil hef ég notað iPod tónhlöðuna mína til að hlusta á bækur. Ég hef að jafnaði eytt 5 tímum á viku keyrandi milli staða og þann tíma hef ég notað m.a. til að “lesa” efni sem annars hefði legið á náttborðinu. Nú er Apple búið að koma skólum í Bandaríkjunum í tónlistarbúðina sína, þannig að hægt er að sækja fyrirlestra og hlusta (horfa) á í iPod, að kostnaðarlausu.
Meðal skóla eru Concordia Seminary, Duke, UC Berkley, MIT … Til að hlusta/horfa á fyrirlestrana þarf iTunes forritið frá Apple og ekki spillir að eiga tónhlöðu (til að geta hlustað á efnið laus við tölvuna).
Related posts:
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Hefurðu hlustað (eða horft!) á trúfræðifyrirlestrana frá Concordia Seminary?
Nei, ekki ennþá, þar sem iPoddinn gaf upp öndina rétt eftir að ég var búinn að hlaða inn fyrstu fyrirlestrana. Veit þó að Concordia er afar íhaldsöm stofnun, hluti Missouri Synod, sem er ekki innan Lútherska Heimssambandsins.
Já, það var einmitt eitt af því sem ég ætlaði að benda á. Kennarinn trúir því til dæmis að heimurinn sé ~6.000 ára gamall.
En hitt sem ég tók eftir er hversu mikill uppgjafartónn er í sumum fyrirlestrunum: Hvernig svörum við bölsvandanum? Við getum það ekki. Hvers vegna bjargar guð ekki öllum? Óskiljanlegt.
Í hvaða fyrirlestri?
Mæli hinsvegar frekar með Duke – eitt af höfuðvígjum ensku biskupakirkjunnar í BNA.
Heimur ~6.000 ára: “Materialism”
Ekkert svar við bölsvandanum: “Theodicy”
Hvers vegna bjargar guð ekki öllum: “Election”
Því miður er ekki mikið efni hjá Duke.