Almennt
Fæddur 1961 í Þýskalandi, búsettur á Íslandi frá 1969 (nema 1989 – 94 í Frakklandi), íslenskur ríkisborgari frá 1994. Kvæntur sr. Yrsu Þórðardóttur, 3 börn fædd 1988 – 1995.
Kennsla og kennaratengd störf
- Leiðbeinandi við Smáraskóla, umsjónarkennsla og sérkennsla, vefstjórn og seta í áfallaráði frá hausti 2007
- Bjó til og kenndi námskeið “Áföll og samfélag” á vegum áfallastuðningshóps HSS 2005 og 2006
- Leiðbeinandi á námskeiðum um sálræna skyndihjálp (RkÍ) frá 1998
- Leiðbeinandi (í forföllum) í Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar 1994 – 2001
- Leiðbeinandi í dönsku við Gagnfræðaskóla Akureyrar 1988 – 1989
Prestsreynsla og preststengd störf
- Sóknarprestur í Tjarnaprestakalli í Kjalarnessprófastsdæmi frá september 2002
- Prestur (afleysing) í Háteigsprestakalli í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra 2000 – 2001
- Sóknarprestur í Kolfreyjustaðarprestakalli í Austfjarðaprófastsdæmi 1994 – 2001
- Meðlimur í áfallastuðningshópi Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja 2004 – 2006
Bakvakt, útköll, æfingar og reglulegur stofugangur á sjúkrahúsinu í Keflavík - Tengiliður og ráðgjafi Biskupsstofu við flugslysaæfingar Flugmálastjórnar 2000 – 2004
Liður í starfshæfnisprófun Flugmálastjórnar á áætlunarflugvöllum víða um landið. Samhæfði aðkomu presta og kirkjulegra starfsmanna í æfingum og hélt stutt námskeið. - Meðferðarfulltrúi áfengisráðgjöf, Samhjálp Hvítasunnumanna, sumar 1986
Stuðningsviðtöl og trúarfræðsla. - Æskulýðsfulltrúi Akureyrarkirkju 1988 – 1989
Stýrði og sá um barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar, skipulagði fjölskylduguðsþjónustur og prédikaði. - Kirkjuvörður og starfsmaður Þjóðgarðsins á Þingvöllum, sumrin 1984 og 1985
- Kirkjuvarsla, staðarleiðsögn og almenn störf í þjóðgarðinum.
Ýmis störf
- Verkefnisstjóri brauðamats- og starfsmaður hópslysanefndar á Biskupsstofu 2000 – 2002
- Verkefnisstjóri tilkynninga- og upplýsingavefs gegn barnaklámi hjá Samtökunum Barnaheill júní – nóvember 2001
Setti upp og starfrækti vefinn “Stöðvum barnaklám á netinu!” (www.barnaheill.is), sótti og skipulagði ráðstefnur, kynningar og fræðslu. - Sölu- og markaðsfulltrúi fyrir Kompass hf. á Grænlandi, í Færeyjum og á Íslandi 1987
- Fulltrúi í alþjóðlegri fjölmiðlamiðstöð, leiðtogafundi Regans og Gorbachev í Reykjavík 1986
- Starfsmaður á Kleppsspítala, Reykjavík, sumar 1982
Áfengisdeild, þrif og ófaglærð umönnun
Ólaunuð kirkjuleg og kirkjunálæg störf
- Nemendaverdar- og áfallaráð Áslandsskóla 2002 – 2007 (ritari)
Tók þátt í að móta viðbragðsáætlun skólasamfélagsins v. áfalla, starfshátta skólans í erfiðum málum og sálgæslu við nemendur og kennara skv. beiðni og á forsendum skólans. - Barna og æskulýðsstarf í Seltjarnarneskirkju, Garðakirkju og Neskirkju 1980 – 1986
- Meðlimur í kirkju- og ýmsum kirkjulegum sönghópum og hópastarfi m.a. í Grensáskirkju og Háteigskirkju 1981 – 2002
Menntun
- Kennaraháskóli Íslands, Grunndeild, Kennsluréttindanám 2007 (áætluð lok í maí 2008)
- Háskólinn í Reykjavík, Tölvunarfræðideild til BS prófs, 2002 (ólokið)
- Eberhardt-Karls Universität Tübingen, Guðfræðideild, doktorsnám í samkirkjulegri guðfræði, 1989 – 1994 (ólokið)
- Háskóli Íslands, Guðfræðideild, embættispróf, 1982 – 1988 (1. einkunn)
Önnur menntun, handleiðsla, ráðstefnur
- Námskeið í sagnalist, “Sacred Storytelling”, Skálholti 2006 og 2007
- Seminar í sálgreiningu “Eðli ofbeldissambanda”, haldið af “Group Studies Associates” í Bar Harbor, Maine, BNA 2005
- Námskeið í uppeldisfræði, “Að alast upp aftur”, ÓB Ráðgjöf 2003
- Fjögur námskeið Landsbjargar í áfallahjálp, Reykjavík, 1997 – 2000
- Námskeið Rauða kross Íslands fyrir leiðbeinendur í sálrænni skyndihjálp, Reykjavík 1998
- Námskeið Rauða kross Íslands fyrir flokkstjóra í fjöldahjálp, Seyðisfirði 2001
- Ýmis námskeið á vegum fræðsludeild kirkjunnar í barna- og æskulýðsstarfi, 1994 – 2007
- Meðlimur í prédikunarklúbbi Reykjavíkurprófastsdæmis vestra 2002 – 2007
- Hóphandleiðsla presta í Reykjavík, Fjölskylduþjónusta kirkjunnar 2004 – 2006
- Hóphandleiðsla presta á Austurlandi, Fjölskylduþjónusta kirkjunnar, 2000 – 2001
- Einstaklingshandleiðsla 2002-3, 2005-7
- Námsferðir á vegum Kjalarnessprófastsdæmis 2003 og 2005
- Prédikunarsemínör Kjalarnessprófastsdæmis 2004 og 2005
- Fjórar ráðstefnur fyrir leiðbeinendur R.k.Í. í sálrænni skyndihjálp 1999 – 2007
- Alfa-ráðstefna, HTB 2003
- Sex flugslysaæfingar á vegum Flugmálastjórnar 1999 – 2005, fulltrúi biskupsstofu á 4 þeirra, sbr. hér fyrir ofan
- EuroCad ráðstefna gegn áfengis- og fíkniefnavanda, Reykjavík, 1995
Útgefið efni og námskeið haldin
- Meistaranemi: http://www.meistaranemi.net
- Sagnavefur: http://storiesandstuff.wordpress.com
- Fermingarwiki: http://is.wikibooks.org/wiki/fermingarwiki (2007)
- Grein: Gegn vilja Guðs?: tveir sóknarprestar tjá sig um samkynhneigð og kirkjun, Bjarmi 1998
- Grein: Kristindómur og trúarbrögð mannkyns í guðfræði Hans Küng, Orðið 1993
- Grein: Ecclesia semper reformanda : þankar að loknum lestri rita Lúthers um messuna, Orðið 1987
- Fjögur námskeið “Áföll og samfélag”, Heilbrigðisstofnun Suðurnesja fyrir fagfólk og viðbragðsaðila 2005 – 2006
- Janúarnámskeið ÆSKR um viðbrögð æskulýðsstarfsmanna kirkjunnar vegna gruns um kynferðislega misnotkun 2002
- Tæplega tuttugu námskeið og kynningar sálræn skyndihjálp, á vegum ýmissa deilda R.k.Í., fyrir almenning, skóla, tómstundarfulltrúa og starfsfólk kirkna, 1998 – 2006
- Alfa-námskeið í Kálfatjarnarkirkju 2004
- Námskeið “Sorg og sorgarviðbrögð”, haldið á Fáskrúðsfirði 1995
Fylgdi námskeiðinu eftir með reglulegu hópastarfi í tvo vetur á eftir.
Færni og áhugamál
Meðlimur í kammerkórnum “Vox academica” og áhugamaður um mat, drykk, gistivináttu, ferðalög, kvikmyndir og internetið sem fjölmiðill, skólunartæki og skoðanagjafi. Tölvustýrð hönnun og umbrot, ljósmyndun, tónlist, lestur og mannleg samskipti. Hef áhuga á menningarsamskiptum, tók þátt í vinabæjarsamstarfi Fáskrúðsfjarðar og Graveline (Frakklandi). Tala fimm tungumál, get stautað mig framúr textum á þremur dauðum tungumálum.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.