
Einn af netvinum mínum bendir á þessa kvikmynd og þessa heimasíðu í dag. Ég ætla að gera eins og hann og bara opna fyrir umræður. Viðbót, frá vefsíðu Dan Kimball og aths. prestsins sem rekur þessar sumarbúðir.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Þarna er einungis verið að vinna með trúarlíf barnanna og opna augu þeirra fyrir trúnni og samfélagi við Guð sinn.
Við megum ekki gleyma því að það eru mannréttindi að gefa barni kost á því að rækta trúarvitund sína og kristinn náungakærleika.
Þetta kallast heilaþvottur!
Sjá: http://www.kirkjan.is/seljakirkja/myndir/joklaborg_006.jpg
Ég sá vísun á viðtal við einn af leikstjórum myndarinnar. Það gæti verið athyglisvert í þessu samhengi.
Carlos, myndirðu álíta hugtakið hryðjuverkamenn hugans of sterkt í þessu samhengi?
Ég ætla að geyma mér að svara, en vísa á fyrstu viðbrögð mín.
Ekkert smá spennandi mynd! Þetta verð ég að sjá.
Áhugaverð skrif frá David Byrne um myndina (og ef þið vitið ekki hver hann er þá vantar mikið í uppeldi ykkar
http://journal.davidbyrne.com/2006/08/american_madras.html
Hjalti Rúnar Ómarsson, hvernig getur þú sagt eftirfarandi eftir að hafa séð þetta myndskeið
“Við megum ekki gleyma því að það eru mannréttindi að gefa barni kost á því að rækta
trúarvitund sína og kristinn náungakærleika.”
Þarna er ekki verið að hvetja til náungakærleiks, þvert á móti. Þarna er meðal annars sagt að til séu tvennskonar fólk “þeir sem elska Jesú og þeir sem elska hann ekki” þ.e. góðir og vondir. Hvaða merkingu heldur þú að börn leggi í svona orð.
“mannréttindi að gefa barni kost á því að rækta trúarvitund sína”???
Heldur þú að þessi börn hafi tekið upplýsta ákvörðun um að vera kristinar trúar?
Þetta er ekkert annað en innræting af verstu gerð.
“Þarna er einungis verið að vinna með trúarlíf barnanna og opna augu þeirra fyrir trúnni og samfélagi við Guð sinn.”
Ertu brjálaður Hjalti Rúnar Ómarsson eða ertu að grínast? Er þetta það sem þú vilt sjá í Íslensku skólakerfi? “Vinna með trúarlíf barnanna” !!!!
Ég hef áttað mig á að Hjalti Rúnar er að gera að gammni sínu
Maður á aldrei að pósta svona í fljótfærni og í hita leiksinns!!
Carlos, ertu ekki til í að eyða mínum innleggjum hér að ofna. Þau gera ekkert annað enn að eyða plássi í þessari umræðu
Hjalti, ég biðst afökunar á að hafa ráðist á ímyndaðar skoðanir þínar, Þú náðir mér þarna
Ég varð mjög sjokkeraður fyrst þegar ég sá þetta fyrir nokkrum vikum. Hins vegar er mikilvægt að skilja að trúarlegt orðfæri og atferli er mjög ólíkt í ákveðnum kreðsum hér í BNA en við eigum að venjast.
Þá er áhugavert í þessu samhengi að velta upp hversu og þá hvort boðun í sumarbúðum KFUM og KFUK á Íslandi sé alltaf svo ólík því sem sjá má í þessari mynd. Þó ytra atferli sé e.t.v. annað. Annars er myndin sýnd í Drexel Theater, Bexley OH, hér í þarnæsta húsi, föstudaginn 6. október. Ég stend hér með fyrir hópferð á myndina ef Annálaritarar hafa áhuga. Ég get haft milligöngu um að redda gistingu ef þarf.
Rétt er að taka fram að ég er ekki að halda því fram að fræðsla í KFUM og KFUK sé eins og sú sem sýnd er í myndinni. Hins vegar er gagnlegt að skoða það sem við þekkjum og “samþykkjum” og spyrja í hverju munurinn felst.
Það hjálpar líka til við að móta framtíðina og vita hvað við eigum að forðast.
E.s. að sjálfsögðu átti að standa fræðsla í færslunni á undan en ekki boðun.
Bíddu, ertu að meina að það eigi sér ekki stað nein boðun hjá KFUM og K, bara fræðsla? Ekki þykir mér það sennilegt.
Já, þessi umræða er mikilvæg til að skilja hvað hefur verið að gerast í Bandaríkjunum síðan Bush komst til valda. En hún er einnig mikilvæg fyrir okkar kirkju til að velta vöngum yfir því hvað fer fram í boðunarstarfi æi eigin ranni.
Börn eru mjög opnar og móttækilegar verur sem auðvelt er að manipulera með. Birgir sýndi okkur nokkuð sláandi mynd úr starfinu í Seljakirkju (þó ég hafi nú ekki fundið hana á heimsíðu hennar!) sem sýnir þetta mjög vel.
Við lesum um blómlegt barnastarf í sumum kirkjum, um ferðir æslulýðsfélags Reykhólakirkju til Taize(!) og svo framvegis en fáum lítið sem ekkert að vita um boðunina sem þar fer fram.
Mér finnst nauðsynlegt að einhver aðili á biskupsstofu hafi eftirlit með þessu starfi, fari á vettvang og kynni sér það, þ.e. einhvers konaa Umbi biskups eins og í Kristnihaldinu.
En fyrst verður kirkjan auðvitað að móta sér stefnu í þessum málum, hvað megi og hvað megi ekki. Má t.d. biðja fyrir stríðsrekstri hinna staðfestu þjóða í Írak og Afganistan?
Athyglisverðir punktar, Elli, Torfi, Birgir. Kannski það sé kominn tími á það að skoða viðurkennda staðla í tengslum við kirkjustarf/fræðslustarf kirkna. Ég sé fyrir mér “Seljakirkja vinnur skv. ISO 9001:2000 staðli” á vef þeirra og kirkjuturni.
[...] heimildarmyndin Jesus Camp er á dagskrá sjónvarpsins í kvöld. Carlos og Elli hafa báðir bloggað um hana. Ég hef lengi ætlað að sjá myndina, kannski ég láti [...]
[...] hjá Árna Svan Færslu hjá Carlosi Færslu hjá [...]