
Barbara Peerdeman hittir naglann á höfuðið.
Undanfarnar vikur hafa sannfært mig um að gagnvirkni persónulegra annála eða bloggsíðna geti gert þær síður að ágætu samræðutóli. Orðinu díalóg kynntist ég fyrst í menntaskóla þegar ég las í verkum Platóns í heimspeki hjá Jóni Hnefli. Seinna lærði ég að meta orðið díalektík sem aðferð í guðfræði, þar sem sannleikurinn er yfirleitt í neistanum á milli rafpólanna – og + (Þórir Kr. Þórðarson). Í Tübingen fékk ég síðan að reyna það hvað samræða sem fór fram á virkum degi milli kl. 20 – 22 undir handleiðslu prófessors og með hvítvíni í glasi gat gert fyrir andann.
Hér á annáli punktur is og á vantrú punktur net og víðar er vettvangur þar sem slík samræða getur átt sér stað, svo framarlega sem umræðurnar fara ekki úr böndum efnisins, fólk fari ekki út í persónu”batl” eða helli úr skálum gremju og reið sinnar úr tengslum við efnið.
Mig langar því að orða tvær reglur sem ég vona að geti orðið til þess að miðla athugasemdum þar sem þess gerist þörf (í þágu samtalsins):
1. Persónuárásum verður umsvifalaust eytt. Athugasemdarusli (“spamm”) verður umsvifalaust eytt.
2. Athugasemdir sem leiða umræðuna frá efninu fá að standa um stund (t.d. 3 dagar) áður en þær verða færðar í nýjan þráð, þær hreinsaðar eða þeim eytt (raus, dulbúnar árásir …).
Þau sem ekki treysta sér til að halda sig við þessar reglur eru beðin að halda sig frá annálnum og færslum.
Óánægju með beitingu þessara reglna skal viðra í tölvupósti (carlos punktur ferrer at kirkjan punktur is) en ekki á annál.
Fyrsta reglan er þegar komin til framkvæmda fyrir annála mína, önnur reglan gildir eingöngu um þennan þráð. Eftir tvær vikur hyggst ég beita þessum reglum um gjörvallan annál minn. Vissulega mun ég taka tillit til athugasemda sem hér koma fram og bera regluverkið undir félaga mína á annall.is.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Engar athugasemdir hafa borist aðrar en óánægja nokkurra sem reglunni var beint gegn. Hitt er annað mál að mér finnst umræðutónninn á annál mínum siðaðari fyrir vikið. Ég lýsi því þessar reglur í gildi í heild sinni fyrir annál minn.
Saell Kalli
Long time no see/hear, hvad er ad frétta af ykkur?
her hefur ymislegt gerst t.d. er Lálá ordin amma sem er útaffyrir sig ágaett, thad eina sem er ekki í lagi vid thad er ad thad er half hallaerislegt ad segja jaeja amma eigum vid ad koma upp i rúm
Kv Raggi