Veit einhver hver orti þessa vísu?
Lastaranum líkar ei neitt
lætur hann ganga róginn.
Finni hann laufblað fölnað eitt
þá fordæmir hann skóginn.
Ég tek það fram, að þetta er ekki dulin sneið til nokkurs manns.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Steingrímur Thorsteinsson skáld (1831-1913).
Takk.
Mikið ertu vel að þér í kvæðum og vísum og ljóðum Örvar. Þú leynir á þér.
Ég vildi ég gæti sagt það sama um sjálfa mig. Ég notaði krókaleið. Sló fyrstu línunni inn í google.com og komst að því sama.
http://www.ismennt.is/vefir/fjarnogk/Nogksam/profatr.htm
Ég, tölvukarlinn, fór auðvitað sömu leið
Staðfesti það svo með því að leita að nánari upplýsingum um Steingrím sjálfan.
Ég kemst ekki inn á google og hef ekki gert í nokkra daga. Nota alltheweb í staðinn og gefst það vel.
Ekki datt mér þessi leið í hug. Greinilega bara smá(lófa)tölvukall