Burt með ruslpóstinn

On Mánudagur, 14. október 2002, in Uncategorized, by carlos@annall.is

MailWasher er forrit sem er að virka í baráttunni við ruslpóstinn. Það leyfir manni að skoða póstinn áður en hann er sóttur og endursenda það af honum sem er rusl. Endursendingin er þrælsniðug þar sem látið er eins og um villupóstfang er að ræða. Þeir sem senda ruslið henda slíkum póstföngum af skránum sínum, þannig að ætla má að eftir nokkurra daga notkun minnkar ruslið sem berst í tölvuna. Það gerðist allavega í mínu tilfelli, í stað 10 – 20 sendinga á dag fæ ég 3 – 4.

Forritið er ókeypis en þeir sem borga eitthvað smáræði losna við auglýsingar sem birtast á forritaglugganum. Það virðist stöðugt, en ég hef slökkt nema þegar ég sæki póst. Því miður fæst það aðeins fyrir Windows.

No related posts.

Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.

 

Comments are closed.