Hljómar kannski barnalega, þessi uppskrift, en hún slær í gegn hvar sem er.
Búið til þykkt pönnukökudeig (hvernig væri að skipta út lyftiduftinu og nota ger í staðinn? Þá er deigið látið hefa sig en samt haft seigfljótandi.). Ég nota bæði vanillubragðefni og smá kaffi (t.d. neskaffi, ef ekkert Espresso er við hendina).
Flysjið, kjarnið og sneiðið epli í fingurþykkar sneiðar, o laga. Setjið í deigið. Bakið kökur sem samanstanda af einni eplasneið og svolitlu deigi á venjulegri pönnu. 4 – 6 pönnsur í einu á pönnunni. Setjið á fat, haldið heitu í ofni og berið fram með uppáhaldssultunni, með hunangi, sykri eða með ávaxtamauki. Þetta er barnalega einfalda útgáfan.
Brjálaði matreiðslumaðurinn (á la Carlos) mælir með eftirfarandi (tómir stælar en algjör hamingja):
Þegar pönnsurnar eru tilbúnar er þeim raðað á barmhátt fat, fallega! Brúnið appelsínusneiðar (með húð!) í sykri (svona eins og brúnaðar kartöfflur) en án smörlíkis. Hellið appelsínusafa saman við. Þegar sósan er tilbúin (smakka!), takið appelsínusneiðarnar upp úr, raðið fallega á pönnsurnar. Blandið saman sósunni og góðum slatta af koníaki, hellið því yfir pönnsurnar og berið eld að. Þetta síðasta er best að gera við matarborðið (ekki gott að hafa mikið af pappírsskrauti hangandi yfir matnum)!
Segið “gjörið svo vel” með uppgjafarhógværð
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.
Áttu ekki við „með uppgerðarhógværð“ Carlos? Eða er svona erfitt að elda þær?
eplapönnsurnar snilld, hef ekki lagt í flamberinguna en er að safna kjarki…..