Það er ljóst að kirkjan þarf að skoða aðkomu sína að hópslysum, stærri og smærri. Það hefur verið ljóst frá upphafi síðasta áratugs síðustu aldar. Samvarðaræfingin gaf dýrmæta sýn á þarfir samfélagsins til hjálpar þegar hamfarir eiga sér stað og kirkjan getur sinnt kallinu þegar það kemur:
Prestar og djáknar er fagfólk sem getur unnið við erfiðar aðstæður. Prestar og dáknar hafa mikla samskipta og aðlögunarhæfni, sem er ómetanlegur kostur í aðstæðum sem eru alltaf að breytast. Prestar og djáknar geta annast fólk sem þarf á huggun að halda. Prestar og djáknar hafa aldalanga reynslu í að vera með sjúkum og deyjandi. Prestar og djáknar geta gengið inn í mörg störf.Listinn getur hæglega orðið lengri. Reynsla okkar, sem tókum þátt í Samvarðaræfingunni var góð, okkur gekk vel að vinna þau verk sem okkur voru falin og samvinnan við íslenskt og erlent hjálparlið til fyrirmyndar.
No related posts.
Related posts brought to you by Yet Another Related Posts Plugin.