Continue reading »
Fyrsta skriffærið mitt var griffill og tafla. Tafla af því að það var ódýrara að nota hana en pappír og vegna þess að tilhlökkunin að komast yfir á pappír hvatti mann til dáða að vanda sig. Ég var 6 ára í þá daga og ég man ennþá eftir þeirri gleði, að fá að skrifa með blekpenna í stílabókina mína, 6 mánuðum eftir að ég var hættur að skrifa á litlu töfluna.
Heather McTaggart um skólamódel síðustu þriggja alda.
Aðhald í rekstri grunnskólakerfisins er farið minna mig á anórexískan megrunarkúr. Niðurskurður og uppsagnir, áframhaldandi og sístandandi aðhaldsaðgerðir án þess að neitt komi á móti. Stærri bekkir, færri og eldri tæki, minni endurnýjun bókakostar, minnkuð afleysingaþjónusta v. veikinda, minnkuð þrif og svo má lengi telja. Eðlilegt í kreppu, mætti ætla. Continue reading »
Settum saman þennan löglega lagalista fyrir diskó 6. bekkjar. Grooveshark er þjónusta þar sem hægt er að hlaða upp lögum sem maður á, hefur keypt eða fengið löglega gefins. Allir sem vilja geta síðan hlustað á hvar sem er og hvenær sem er (nettenging!). Viðmótið er eins og iTunes og afar þæginlegt. Hægt er að velja kostaða þjónustu ($30 á ári) sem gefur aukin þægindi. Með þessu móti fá allir sín stefgjöld eftir því hvað er spilað og hve oft.
Nú þegar prestar, stjórnmálamenn og fleiri Facebooknotendur hafa uppgötvað myndbloggið (videoblog), finnst mér kominn tími til að minna á einfaldar reglur og leiðir til að ná árangri.
Myndblogg – hvernig? from Carlos Ferrer on Vimeo.
